fyrir Menn
Heildræn notkun tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt,
með vottaðri tækni sem styður jafnvægi og orkubúskap líkamans.
Notuð af meðferðaraðilum, ráðgjöfum og fagfólki á sviði heildrænnar heilsu.
Frá árinu 1982 hefur Rayonex verið skuldbundið því að þróa heildrænar lausnir sem styðja við heilsubætandi starfsemi, með áherslu á að örva og styrkja heilunarmátt líkamans með frumuhvatningu.
Fyrirtækið hefur þróað tvö tæki í flokkum I og IIa, vottað samkvæmt DIN EN ISO 13485 fyrir heilsubætandi notkun. Tækin eru hönnuð til að vinna saman og styðja hvort annað:
Flaggskipið Rayocomp PS 1000 Polar 4.0 med. inniheldur Rayoscan®-einingu sem byggir á hjartalínuriti og notar lífeðlisfræðilegar aðferðir sem byggja á endurgjöf líkamans (biofeedback methods) til að mynda orkufingrafar einstaklingsins.
Byggt á þessari orkugreiningu er síðan mótuð einstaklingsmiðaða meðferð fyrir hvern og einn.
Með Rayocomp PS 10 med. er einnig hægt að beita sömu nálgun heima, undir leiðsögn eða eftirfylgd meðferðaraðila.


Árangur tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt hefur verið studdur með rannsóknum, bæði frumurannsóknum (in vitro) og í lifandi líkama (in vivo). Rannsóknir á frumustarfsemi hafa sýnt að virkni frumna getur aukist um allt að 45% við áhrif tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt. Sérstaklega athyglisverð er tvíblind slembirannsókn með lyfleysuhópi, sem leiddi í ljós verkjastillandi áhrif hjá einstaklingum með hálshryggsheilkenni (cervical spine syndrome). Niðurstöðurnar benda til þess að tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt virki með sjáanlegum árangri.
Markverðar framfarir komu fram í klínískum mælingum varðandi verk í hálsi, höfuðverk, bakverk og vöðvaspennu hjá þátttakendum sem fengu tíðnimeðferð. Þeir upplifðu einnig aukið líkamlegt úthald og almenna vellíðan, á meðan engin slík bæting sást hjá þeim sem fengu lyfleysumeðferð. Nánari upplýsingar má finna undir ‘Rannsóknir‘.
Við viljum að lokum vekja athygli á þeim námskeiðum sem við bjóðum upp á. Heilbrigðisstarfsfólk og aðrir meðferðaraðilar sem eru opnir fyrir heildrænnum aðferðum og viðbótarnálgun við hefðbundna læknisfræði og vija kynnast kenningum Paul Schmidt nánar geta tekið þátt í fimm daga námskeiði til þess að verða vottaður tíðnitæknir í tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt.
Við bjóðum einnig upp á tveggja daga einstaklingsmiðaða þjálfun: þar sem þátttakendur fá fræðilega yfirsýn yfir orsakamiðaða nálgun tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt og hagnýta leiðsögn í notkun tíðnitækjanna.
