Icon Human medicine

fyrir Menn

Heildræn notkun tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt,
með vottaðri tækni sem styður jafnvægi og orkubúskap líkamans.
Notuð af meðferðaraðilum, ráðgjöfum og fagfólki á sviði heildrænnar heilsu.

Frá árinu 1982 hefur Rayonex verið skuldbundið því að þróa heildrænar lausnir sem styðja við heilsubætandi starfsemi, með áherslu á að örva og styrkja heilunarmátt líkamans með frumuhvatningu.
Við höfum þróað tvö tæki í flokkum I og IIa, vottað samkvæmt DIN EN ISO 13485 fyrir heilsubætandi notkun. Tækin eru hönnuð til að vinna saman og styðja hvort annað:
Flaggskipið Rayocomp PS 1000 Polar 4.0 med. inniheldur Rayoscan®-einingu sem byggir á hjartalínuriti og notar lífeðlisfræðilegar aðferðir sem byggja á endurgjöf líkamans (biofeedback methods) til að myndaorkufingrafar einstaklingsins.
Byggt á þessari orkugreiningu má móta einstaklingsmiðaða meðferð.
Með Rayocomp PS 10 med. er einnig hægt að beita sömu nálgun heima, undir leiðsögn eða eftirfylgd meðferðaraðila.

PS 10 in use
PS 1000 polar in use

Árangur tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt hefur verið tuddur með rannsóknum, bæði í frumurannsóknum (in vitro) og í lifandi líkama (in vivo).. Rannsóknir á frumustarfsemi hafa sýnt að virkni frumna getur aukist um allt að 45% við áhrif tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt. Sérstaklega athyglisverð er tvíblind slembirannsókn með lyfleysuhópi, sem leiddi í ljós verkjastillandi áhrif hjá einstaklingum með hálshryggsheilkenni (cervical spine syndrome).. Niðurstöðurnar benda til þess að tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt virki bókstaflega með bylgjum árangurs.

Markverðar framfarir komu fram í klínískum mælikvörðum varðandi verk í hálsi, höfuðverk, bakverk og vöðvaspennu hjá þátttakendum sem fengu tíðnimeðferð. Þeir upplifðu einnig aukið líkamlegt úthald og almenna vellíðan, á meðan engin slík bæting sást hjá þeim sem fengu lyfleysumeðferð. Nánari upplýsingar má finna undir ‘Rannsóknir‘. 

Við viljum að lokum vekja athygli á þeim námskeiðum sem við bjóðum upp á. Heilbrigðisstarfsfólk og aðrir meðferðaraðilar sem eru opnir fyrir heildrænni og viðbótarnálgun við hefðbundna læknisfræði og vill kynnast kenningum Paul Schmidt nánar getur tekið þátt í fimm daga námskeiði til þess að verða vottaður tíðnitæknir í tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt. .

Við bjóðum einnig upp á tveggja daga einstaklingsmiðaða þjálfun: þar sem þátttakendur fá fræðilega yfirsýn yfir orsakamiðaða nálgun tíðnimeðferðar samkvæmt kenningum Paul Schmidt og hagnýta leiðsögn í notkun tíðnitækjanna.

Tíðnimeðferðartæki fyrir menn

Rayocomp PS 10 med.

Class IIa medical device, portable bioresonance device
1.792.805 kr.

Rayocomp PS 1000 polar 4.0 med.

Class IIa medical device, stationary high-end bioresonance device
5.336.715 kr.

Cart