Heilbrigð þarmaflóra er mikilvæg fyrir góða starfsemi ónæmiskerfisins. Í þörmunum búa hundruð billjóna gerla sem sinna fjölbreyttum og mikilvægum hlutverkum. Manneskjan og gerlarnir lifa í samlífi og styðja hvert annað. Þegar jafnvægi raskast getur það dregið úr virkni ónæmiskerfisins, aukið gegndræpi í þarmaslímhúð og auðveldað sýklum og veirum að komast inn í líkamann. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að viðhalda góðu jafnvægi í þarmaflórunni. Heilbrigð þarmaflóra styrkir slímhúðina, styður meltingu, stuðlar að reglulegri hægðalosun og getur dregið úr hægðatregðu. Fæðubótaefni sem er orkulega fínstillt með tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt getur stutt þetta ferli.
Rayoflora® inniheldur vel samstillta blöndu tólf góðgerlastofna, að mestu mjólkursýrugerla, í duftformi. Gerlarnir eru frystþurrkaðir með sérstakri aðferð og formúlan tryggir að þeir komist heilir gegnum meltingarveginn. Inúlín veitir gerlunum næringu og ensímið amýlasi hjálpar til við virkjun þeirra. Vanilluþykkni gefur náttúrulegt bragð.
Samsetning lactobacilli, lactococci, enterococci og bifidobacteria í Rayoflora® hefur sterk vísindaleg rök: fjölbreytt gerlaflóra styður slímhúðarjafnvægi og eykur varnir gegn óæskilegum örverum. Rayoflora® er án aukefna og laus við laktósa, glúten, dýraprótein og ger og hentar því grænmetisætum og vegan.





